Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir þjálfurum, hópfimleikaþjálfara og þjálfara til að hafa yfirumsjón með drengjafimleikum. Deildin er í örum vexti með frábæra aðstöðu. Okkur langar mikið til að sinna drengjum betur en þurfum einhvern góðan til að koma okkur af stað.
Áhugasamir hafi samband í netfangið maria@keflavik.is
Fimleikakveðja frá Keflavík
Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir áhaldafimleikaþjálfara kvenna. Deildin er ört vaxandi, með um 400 iðkendur. Stúlkurnar sem eru lengst komnar í deildinni keppa í 1. og 2. þrepi á næsta keppnistímabili. Einnig getur deildin státað sig af því að vera í nýju fimleikahúsnæði sem er mjög vel búið. Áhugasamir hafi samband í netfangið maria@keflavik.is
Fimleikadeild Keflavíkur er með til sölu nokkur áhöld, t.d. loftdýnu og fleira. Ef þið hafið áhuga, kíkið endilega á keflavik.is, undir fimleikar.
Kær kveðja
María Ólad. fimleikadeild Keflavíkur
Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir reyndum þjálfara í hópfimleikum í janúar. Vinnutími er um 30 stundir á viku. Fimleikadeildin er í örum vexti og eru iðkendur á fjórða hundraðið. Félagið er með keppendur í hópfimleikum í TeamGym niður í byrjendur. Í janúar flytur fimleikadeildin í nýtt og glæsilegt íþróttahús sem verður með frábæra aðstöðu bæði fyrir þjálfara og iðkendur. S
Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir reyndum þjálfara í hópfimleikum frá og með næsta hausti. Vinnutími er um 30 stundir á viku. Fimleikadeildin er í örum vexti og nálgast iðkendur fjórða hundraðið. Félagið er með keppendur í hópfimleikum í TeamGym niður í byrjendur. Samkeppnishæf laun og önnur fríðindi í boði. Fimleikadeildin í Keflavík er fyrirmyndarfélag ÍSÍ.