Núna um helgina byrjar Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Trabzon, Tyrklandi, og stendur frá 23.júlí - 30. júlí 2011. Þátttakendur frá fimleikadeildum Ármanns, Gerplu, Bjarka og Fylkis mun keppa fyrir hönd Íslands.
Gerpill Ármannsson er skemmtilegt verkefni áhugamanna um fimleika- íþróttina og hefur það markmið að skapa fjör og stemmningu í kringum íslenska fimleika. Gerpill notast við netmiðla, sbr. facebook, youtube og annað til að koma skemmtilegu efni á framfæir. Í augnablikinu er búið að gera prófíl af Gerpli Ármannssyni á Facebook og hvetjum við alla til að gerast vinir Gerpils og styðja þetta verkefni. Hér er linkur á síðu Gerpills www.facebook.com/gerpill
Frábært Íslandsmeistaramót fór fram nú um helgina við glæsilegar aðstæður í Laugabóli, fimleikahöll Ármanns. Á laugardeginum var keppt í fjölþraut og þar gátu einnig fimm hæstu einstaklingarnir á hverju áhaldi tryggt sér sæti í úrslitum á einstökum áhöldum sem fóru síðan fram á sunnudeginum.
Bikarmótið í hópfimleikum fór nú fram íþróttahúsi Stjörnunnar við Ásgarð. Á mótinu kepptu allir okkar bestu hópfimleikamenn. Keppt var í þremur flokkum hjá konunum meistaraflokki, fyrsta flokki og öðrum flokki en hjá körlunum var aðeins eitt lið og kepptu þeir í meistarflokki.
Keppnin var jöfn og spennandi í meistaraflokki kvenna en þar kepptu fjögur lið í heildina. Hið sigursæla lið Gerplu náði að tryggja sér sigurinn með samanlagt 48,533 stig, Stjarnan kom á eftir þeim með 45,900 stig, Selfoss lenti í þriðja sæti með 43,467 stig og Keflavík rak lestina með 39,433 stig.
Þorramótið í fimleikum fór fram um síðustu helgi í íþróttaheimili Bjarkar. Mótið var í umsjá Fjölnis og fór fram með glæsibrag. Á mótinu var keppt í tveimur flokkum hjá stúlkunum, 15 ára og yngri og sextán ára og eldri en hjá strákunum var hins vegar keppt í þremur flokkum eða 12-14 ára, 15-18 ára og svo 19 ára og eldri.
Í gær, laugardag, fór fram í Laugarbóli, fimleikahúsi Ármanns í Laugardalnum, Íslandsmótið í þrepum íslenska fimleikastigans. Átta stigahæstu einstaklingar vetrarins í hverju þrepi, í pilta- og stúlknaflokki, höfðu tryggt sér þátttökurétt á mótinu. Keppendur voru 90 talsins og komu frá átta félögum þ.e. frá Björk, Fimleikafélagi Akureyrar (FIMAK), Fjölni, Fylki, Gerplu, Gróttu, Keflavík og Ármanni.
Það var hart barist um verðlaun á áhöldum á sunnudeginum á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem fram fór í Bjarkarhúsinu í Hafnarfirði um helgina.
Stelpurnar kepptu í sameinuðum flokki, eldri og yngri stúlkur, um þrjú efstu sætin á hverju áhaldi en strákarnir kepptu í tveimur flokkum þ.e. í flokki unglinga og eldri keppenda.
Viktor Kristmannsson, Gerplu, og Fríða Rún Einarsdóttir, Gerplu, urðu í dag Íslandsmeistarar í fjölþraut í áhaldafimleikum á Íslandsmótinu sem haldið er í Bjarkarhúsinu í Hafnarfirði núna um helgina. Á mótinu í dag var einnig keppt um Íslandsmeistaratitil unglinga og þar sigruðu þau Jón Sigurður Gunnarsson, Ármanni, og Tinna Óðinsdóttir, Gerplu.
Úrslit á einstökum áhöldum fara fram á morgun sunnudag þar sem búast má við hörku keppni.
Úrslit má finna á úrslitasíðunni (fljótlega).
Ármenningar voru sigursælir í liðakeppni í þrepum á Bikarmótinu um helgina. Þeir sigruðu í 3., 4. og 5. þrepi stúlkna og í 1., 2., 4. og 5. þrepi pilta. Gerpla, sem í gær sigraði í liðakeppni í frjálsum æfingum karla og kvenna, sigraði í 1. og 2. þrepi stúlkna. Bjarkirnar urðu síðan 3. félagið til að ná bikarmeistaratitli um helgina þegar piltarnir frá Björk sigruðu í 3. þrepi.