Ráðstefna á vegum tækninefndar í hópfimleikum föstudaginn 19.okt. 2007
Breytingar sem gerðar hafa verið á Landsreglum eru eftirfarandi:
• Fjöldi keppenda í umferð á dýnu og tramólínu fer úr 6-10 í 6-12
• Allir keppendur verða að framkvæma fyrstu umferð á dýnu.
• Allir keppendur verða að framkvæma fyrstu umferð á trampólíni
• Frádráttur er 1,0 á keppanda í hvert skipti ef hann stekkur í umferð 2 og 3 en ekki í fyrstu.
Öll lið sem keppa sem seniorar á Teamgym mótum vetrarins öðlast sjálfkrafa keppnisrétt á fyrri degi á Íslandsmóti og þurfa þá bara að skrá sig inn í felix eins og á venjulegt hópfimleikamót.
Við val liða á Norðurlandamót junior verður miðað við úrslit á Unglingamóti 9.-10. febrúar 2008
Við val liða á Evrópumót senior verður miðað við úrslit á fyrri degi Íslandsmóts 7. mars 2008.
Tvö Work shop verða haldin á tímabilinu
• Fyrra námskeiðið er fyrir unglinga og fullorðna, dagsetning er áætluð 28.-30. desember. Verð fyrir iðkanda er 3.500 kr. og fyrir þjálfara 1.000 kr.
• Seinna námskeiðið er fyrir börn, dagsetning er áætluð ? febrúar. Verð fyrir iðkanda 3.500 kr. og fyrir þjálfara 1.000 kr.
Skráningu á Haustmót hefur verið frestað fram til mánudagsins 22. október, þannig að fólk gæti áttað sig á breytingum sem hafa verið gerðar á Landsreglum.
Almennt
• Dansblöð og stökklistar eiga að afhendast eigi síðar en tveimur tímum fyrir mót í fimm eintökum.
• Dansblöð og stökklista skal jafnframt senda á skrifstofu FSÍ þremur dögum fyrir öll mót vetrarins, á tölvutæku formi, til að hægt sé að yfirfara stökklista fyrir mótið.
• Ef breytingar verða á stökklistum eftir að skilað hefur verið inn til FSÍ skal tilkynna það á mótsstað eigi síðar en 2 tímum fyrir mót. Merkt skal sérstaklega við hvar breytingar hafa orðið.
• Tónlist á að vera á merktum geisladiski fyrir hvert áhald. Þá er átt við að ekki er hægt að nota sama diskinn fyrir dýnu og trampólín. Ekki er leyfilegt að annað efni finnist á disknum.
• Þjálfarar skulu klæðast íþróttafötum merktu sínu félagi, ekki með neina skartgripi og með hárið í tagli (ef það er sítt)
THF