Fimleikar í fréttum

Af Suðurland.is 

Tindur Snær og Gunnar Þór Íslandsmeistarar

Íslandsmóti í fimleikum, 1. og 2. þrepi lauk í Vestmannaeyjum í dag. Mótið gekk mjög vel en rúmlega þrjú hundruð krakkar á aldrinum 10 ára og eldri tóku þátt í mótinu. Þeim sem best gekk komast svo á Meistaramót Íslands um næstu helgi en þar verða krýndir Íslandsmeistarar. Reyndar voru krýndir tveir Íslandsmeistarar um helgina og báðir komu þeir frá Fimleikafélaginu Rán í Vestmannaeyjum.


Það voru þeir Tindur Snær Sigurbjörnsson og Gunnar Þór Stefánsson, sem eru jafnframt frændur, nágrannar og miklir félagar. Ástæðan fyrir því að aðeins þeir voru krýndir Íslandsmeistarar var sú að þátttakendafjöldi í þeirra flokki var ekki nægjanlegur til að senda áfram tíu efstu á Meistaramót og því lauk keppni hjá þeim um helgina. Engu að síður stórglæsilegur árangur hjá strákunum sem sögðust báðir stefna á Ólympíuleikana einn daginn.

Annars var árangur Eyjakrakkanna mjög góður, þau hlutu fjölmörg verðlaun en nánar verður greint frá árangrinum í Fréttum á fimmtudaginn.

Eins kom frétt á RUV um mótið: skoðið hér