Íslandsmótið í þrepum - Dagur Ármenninga

Í gær, laugardag, fór fram í Laugarbóli, fimleikahúsi Ármanns í Laugardalnum, Íslandsmótið í þrepum íslenska fimleikastigans.  Átta stigahæstu einstaklingar vetrarins í hverju þrepi, í pilta- og stúlknaflokki, höfðu tryggt sér þátttökurétt á mótinu.  Keppendur voru 90 talsins og komu frá átta félögum þ.e. frá Björk, Fimleikafélagi Akureyrar (FIMAK), Fjölni, Fylki, Gerplu, Gróttu, Keflavík og Ármanni.

Ármenningar voru, eins og á þrepamótum í vetur, mjög sigursælir og fengu Íslandsmeistaratitla í sjö þrepum af tíu.  Úrslit urðu annars sem hér segir:

Stúlkur:
1. þrep  Viktoría Pétursdóttir, Gerplu
2. þrep  Andrea Rós Jónsdóttir, Björk
3. þrep  Katrín Myrra Þrastardóttir, Ármanni
4. þrep  Arna Petra Sverrisdóttir, Ármanni
5. þrep  Andrea Rún Þorvaldsdóttir, Ármanni

Piltar:
1. þrep  Atli Jasonarson, Ármanni og Hávar Helgi Helgason, Ármanni
2. þrep  Sigurður Andrés Sigurðarson, Ármanni
3. þrep  Gunnar Orri Guðmundsson, Gerplu
4. þrep  Hrannar Kristinsson, Ármanni
5. þrep  Adam Elí Inguson, Ármann

Öll úrslit á tenglinum 'Úrslit móta' hér til hliðar.