
"Golden Age" er fimleikahátíð ætluð 50 ára og eldri og haldin annað hvert ár.
Öllum leikfimi- og danshópum sem skráðir eru innan fimleikahreyfingarinnar stendur til boða að taka þátt í þessari skemmtulegu fimleikahátíð.
Fyrsta Golden Age hátíðin fór fram á Kanaríeyjum árið 2008, sú næsta var í Portúgal árið 2010 og sú þriðja verður á Ítalíu 2012.