Undirbúningur fyrir ferð FSÍ á EUROGYM 2010 er kominn á fullt. 270 þátttakendur eru skráðir og hafa greitt staðfestingargjaldið.

Allar upplýsingar um hátíðina eru á heimasíðu hennar: http://eurogym2010.com/ Þar má lesa sér til um vinnubúðir/ work-shop, gistingu, skoðunarferðir, fæði, dagskránna o.fl. Hópstjórar félaga hafa fengið uppgefið lykilorð sem þeir nota til að skrá hópa sína. Nauðsynlegt er að skrá allar upplýsingar fullt nafn, fæðingardag, vegabréfsnúmer, trygginganúmer, tryggingafélag...
Þáttakendur frá FSÍ fljúga með Icelandair í tveimur hópum:
Hópur 1: 10.júlí næturflug til Kaupmannahafnar; 16.júli kvöldflug heim
Hópur 2: 10.júli seinni partinn til Kaupmannahafnar; 16.júlí kvöldflug heim.
Þegar nafnalisti hefur borist frá öllum félögum mun félögum verða raðað í vélar. Þangað til er ekki hægt að greiða inn á flug, breyta eða fá frekari upplýsingar um brottfarar- og komutíma.
Flugið greiðir hver einstaklingur til Icelandair í gegnum heimasíðu þeirra. Nánari leiðbeiningar verða senda félögum er nær dregur. Með þessum hætti geta foreldrar greitt með kreditkorti og notað punkta upp í fargjaldið. Icelandair hefur gefið út að EKKI er hægt að bóka vildarflug á þessum dögum.
Foreldrar fá allar upplýsingar hjá hópstjórum/tengiliðum félagsins.