Þing Fimleikasambands Íslands verður haldið í fundarsölum ÍSÍ, Engjavegi 6, Reykjavík, laugardaginn 23. janúar 2010.
Þingið verður sett kl. 10.00.
Við minnum á eftirfarandi samþykkt: Félögum er ekki heimilt að hafa mót, sýningar eða aðra viðburði á sínum vegum á sama tíma og þing Fimleikasambandsins er haldið.
Kjörbréfum skal skila 7 dögum fyrir þing.
Samkvæmt 7. grein laga FSÍ skulu sambandsaðilar senda tillögur að lagabreytingum og málefnum sem þeir vilja leggja fyrir þingið til FSÍ a.m.k. þremur vikum fyrir þing þ.e. í síðasta lagi 2. janúar en sambandinu ber síðan að senda þær tillögur sem berast til sambandsaðila 14 dögum fyrir þing eða 9. janúar.
Samkvæmt 8. grein laga skal dagskrá fimleikaþings skal vera:
1. Þingsetning.
2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
3. Staðfest lögmæti fundarins.
4. Kosning kjörbréfanefndar - athugað kjörgengi fundarmanna.
5. Fundargerð síðasta þings.
6. Afhending viðurkenninga.
7. Ávörp gesta.
8. Kosning formanna starfsnefnda þingsins:
a) Tækninefnd kvenna
b) Tækninefnd karla
c) Tækninefnd í hópfimleikum
d) Tækninefnd almennra fimleika
e) Nefnd um fimleika fyrir alla
f) Fræðslunefnd
g) Laganefnd
h) Fjárhagsnefnd
i) Aðrar nefndir samkv. ákvörðun þings hverju sinni
9. Skýrsla stjórnar.
10. Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna).
11. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
12. Reikningar bornir undir atkvæði.
13. Teknar fyrir tillögur sem lagðar hafa verið fyrir þingið ásamt almennum umræðum um þær:
a) Almennar tillögur
b) Lagabreytingatillögur
c) Fjárhagsáætlun
14. Formenn þingnefnda gera grein fyrir störfum nefnda og atkvæði greidd um niðurstöður þeirra
15. Kosning stjórnar og varamanna.
16. Kosning skoðunarmanna reikninga.
17. Kosning í nefndir á vegum FSÍ.
18. Val fulltrúa á Íþróttaþing
19. Önnur mál.
20. Ávarp formanns.
Þingslit.