Fræðslunefnd auglýsir:
Námskeið í móttöku á trampólíni, stig 1, 20.-21. febrúar – Garðabær
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem að eru að þjálfa trampólín. Farið verður í öryggisþætti í kennslu á trampólíni og móttökutækni. Námskeiðið er að mestu leyti verklegt þar sem að þátttakendur læra og þjálfa sig í móttöku. Farið verður í móttöku í einföldum heljarstökkum, heljarstökkum með skrúfum, yfirslag, yfirslag með snúningum og upp að grunni að Tsukahara.
Óskað er eftir að hver þjálfari komi með 1 – 2 stökkvara með sér á námskeið til að sýna og taka þátt í verklegum æfinum.
Þetta námskeið var síðast haldið haust 2008 við góðar undirtektir þátttakenda.
Námskeiðið verður haldið í nýju fimleikahúsi Stjörnunnar í Garðabæ og er frá kl. 9:00 – 17:00 báða daga með matarhléi.
Kennarar á námskeiðinu eru Jimmy Ekstedt og Nicleas Jerkeholt.
Námskeiðsgjald er 12.000 krónur og verður rukkað í gegnum skrifstofu félaganna. Áætlaður lágmarksfjöldi þátttakenda er 15 og hámarksfjöldi 30. Skráning fer fram á skrifstofu FSÍ: fsi@isisport.is fyrir 12. febrúar.
Námskeið í móttöku á trampólíni, stig 2 er einnig fyrirhugað en mikilvægt að þjálfarar hafi lokið stigi 1 sem og sérgreinahluta FSÍ stigi 1 öllum hlutum eða öðrum sambærilegum námskeiðum að mati fræðslunefndar og kennara námskeiðsins.