Nú um helgina fór fram fjölmennt og skemmtilegt Unglingamót í hópfimleikum. Keppt var í 5 flokkum: í 1. og 2. flokki er keppt eftir alþjóðlegum reglum en í öðrum flokkum er keppt eftir Landsreglum sem eru byggðar á þeim alþjóðlegu en þó með auðveldari kröfur sem þarf að uppfylla. Liðin komu frá öllu landinu, Vestmannaeyjum, Akranesi, Akureyri, Hornafirði, Egilsstöðum, Þorlákshöfn, Selfossi og Höfuðborgarsvæðinu.
Lið frá Gerplu og Selfossi háðu harða og spennandi keppni um Íslandsmeistaratitil unglinga. Þau hafa att keppni saman fyrr á árinu og skiptst á að vinna. Nú sigraði Gerpluliðið nokkuð örugglega með 45.95 stig á móti 43.50 hjá Selfossi.
Spennan var einnig mikil í 5. flokki þar sem í Stjarnan vann með 22.00 eða 0.10 stiga mun lið á Gerplu sem fékk 21.90. Í 4.flokki voru tvö lið með sömu heildarstig 22.15 en samkvæmt reglum þá vinnur það lið sem hefur hærri einkun á fleiri áhöldum. Lið Hattar var með hærri einkun á dýnu og trampolíni en lið Gerplu á gólfi.
Úrslit mótsins í heild má einnig finna á úrslitasíðu hér til vinstri.