Bikarmót í áhaldafimleikum verður haldið í Versölum, 24.- 26. febrúar 2012 í umsjón Gerplu.
Skráning fer fram í gegnum FELIX og þarf að berast fyrir 27. janúar 2012. Breytingar/forföll skulu tilkynnast með tölvupósti á skrifstofu FSÍ að þeim tíma liðnum.
Nauðsynlegt er að tilgreina nöfn dómara í þar til gerða möppu.
Keppt er í frjálsum æfingum og þrepum kvenna og karla.
Hvert félag á rétt á einu liði í hvern getuflokk:
a) Frjálsar æfngar kvenna og karla: Hvert lið samanstendur af fimm keppendum, fjórir keppa og þrír telja.
b) Íslenski fimleikastiginn, 2. og 1. þrep kvenna og karla: Hvert lið samanstendur af fimm keppendum, fimm keppa og þrír telja.
c) Íslenski fimleikastiginn, 5. 4. og 3. þrep kvenna og karla: Hvert lið samanstendur af sex keppendum, sex keppa og fjórir telja.