Bikarmót í hópfimleikum verður haldið 2.-3. mars 2012 í Ásgarði, Garðabæ, í umsjón Stjörnunnar.
Skráning fer fram í gegnum FELIX og lýkur 8. febrúar 2012.
Nauðsynlegt er að skrá nöfn dómara í þar til gerða möppu.
Farið er eftir mótafyrirkomulagi tækninefndar hópfimleika og telur mótið til stiga í deildarkeppni úrvalsdeildar:
Keppt er í öllum flokkum úrvalsdeildar, þ.e. meistaraflokki, 1. og 2. flokki. Bikarmeistarar krýndir, 2.flokkur á ekki möguleikga á þeim titli vegna annarra reglna en hjá 1.flokki og meistaraflokki.