Þorramótið í fimleikum fór fram um síðustu helgi í íþróttaheimili Bjarkar. Mótið var í umsjá Fjölnis og fór fram með glæsibrag. Á mótinu var keppt í tveimur flokkum hjá stúlkunum, 15 ára og yngri og sextán ára og eldri en hjá strákunum var hins vegar keppt í þremur flokkum eða 12-14 ára, 15-18 ára og svo 19 ára og eldri. Greinilegt er að vanir keppendur eru á fullu að fínpússa æfingarnar fyrir komandi mót en einnig mátti sjá nýja keppendur sýna glæsileg tilþrif. Því er greinilegt að nóg er af efnilegu fimleikafólki á Íslandi og því stefnir í skemmtilegt keppnistímabil þetta vorið.
Í flokki 15 ára og yngri sigraði Jóhanna Rakel Jónasdóttir (Ármann) með 44,500 stig samanlagt. Í öðru sæti var Norma Dögg Róbertsdóttir (Gerpla) með 42,433 stig. Í þriðja sæti var svo Hildur Ólafsdóttir (Fylkir) með 40,133 stig.
Í flokki 16 ára og eldri sigraði Agnes Suto (Ármann) með 47,733 stig samanlagt. Í öðru sæti var Birta Sól Guðbrandsdóttir (Gerpla) með 44,533 stig. Í þriðja sæti var svo Tinna Óðinsdóttir (Gerpla) með 43,400 stig.
Í flokki12-14 ára sigraði Valgarð Reinhardsson (Gerpla) með 59,300 stig Samanlagt. Í öðru sæti var Halldór Dagur Jósefsson (Ármann) með 53,700 stig. Í þriðja sæti var svo Eyþór Örn Baldursson (Gerpla) með 53,050 stig.
Í flokki 15-18 ára sigraði Jón Sigurður Gunnarsson (Ármann) með 65,850 stig samanlagt. Í öðruu sæti var Garðar Egill Guðmundsson (Gerplu) með 64,900 stig. Í þriðja var svo Sigurður Andrés Sigurðarson (Gerpla) með 57,550 stig.
Í flokki 19 ára og eldri sigraði Róbert Kristmannsson (Gerplu) með 76,700 stig samanlagt. Í öðru sæti var Ólafur Garðar Gunnarsson (Gerplu) með 60,100 stig. Í þriðja var svo Tómas Aron Guðmundsson (Ármann) með 50,250 stig.
Nánari úrslit má sjá undir „Úrslit móta“ hér vinstra megin.