
Íslandsmeistaramót fimleika í þrepum fór fram í fimleikahúsi Bjarkar í dag. Á þessu móti keppa þeir krakkar sem hafa staðið sig best á mótum vetrarins og unnið sér inn rétt til að keppa um Íslandsmeistaratitlinn. Keppt var í 5 þrepum íslenska fimleikastigans bæði hjá körlum og konum. Fyrsta þrep er fyrir þá sem eru lengst komnir en fimmta þrep fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni.
Í fyrsta þrepi kvenna sigraði Þórey Kristinsdóttir úr Björk með 45,55 stig í öðru sæti var Hildur Ólafsdóttir Fylki með 43,45 stig og í þriðja var Birgitta Rún Guðmundsdóttir Gerplu með 43,300 stig.
Í öðru þrepi sigraði Katrín Myrra Þrastardóttir Ármanni með 47,5 stig í öðru sæti var Harpa Guðrún Hreinsdóttir Stjörnunni með 46,15 og í því þriðja var Ásdís Birna Jónasdóttir Gerplu með 44,75
Í þriðja þrepi voru jafnar í fyrsta og örðu sæti Arna Petra Sverrisdóttir Ármanni og Birna Rós Stefánsdóttir Björk með 59,150 í þriðja sæti var Sigrún Harpa Stefánsdóttir Gerplu.
Í fjórða þrepi sigraði Kristjana Ýr Kristinsdóttir Björk með 60,100 stig í örðu var Andrea Rún Þorvaldsdóttir Ármanni með 59,033 stig og í því þriðja var Vilborg María Loftsdóttir Ármanni með 58,367 stig
Í fimmta þrepi sigraði Eygló Sóley Hróðmarsdóttir Ármanni með 59,997 stig í örðu var Svala Davíðsdóttir einnig úr Ármanni með 59,333 stig og í því þriðja var Nína María Guðnadóttir Björk með 59,100 stig.
Í fyrsta þrepi hjá strákunum sigraði Atli Jasonarson Ármanni með 67,700 stig í örðu sæti var Valgarð Reinhardsson Gerplu með 65,900 stig og í því þriðja var Alexander Jens Ásgeirsson Ármanni með 64,600 stig.
Í öðru þrepi sigraði Gunnar Orri Guðmundsson Gerplu með 76,550 stigum í öðru sæti var félagi hans Eyþór Örn Baldursson með 74,517 og í þriðja sæti var Atli Thorarensen Björk með 68,867 stig.
Í þriðja þrepi sigraði Stefán Ingvarsson Björk með 88,400 í örðu sæti var Sævar Ingi Sigurðsson Gerplu með 85,500 stig og í þriðja var Viktor Örn Axelsson Ármanni með 85,033 stig.
Í fjórða þrepi sigraði Tjörvi Þórhallsson Ármann með 92,950 í örðu sæti var Aron Freyr Axelsson Ármanni með 90,700 stig og jafnir í þriðja sæti urðu Daniel Orri Ómarsson og Adam Elí Inguson Arnaldsson báðir úr Ármanni með 90,250stig.
Í fimmta þrepi sigraði Martin Bjarni Guðmundsson Gerplu með 91,700 stig í öðru sæti varð Leó Björnsson einnig úr Gerplu með 90,100 stig. í þriðja sæti varð Þorleifur Rafn Aðalsteinsson Ármanni með 89,750 stig.