Áhaldaþjálfari óskast

Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir áhaldafimleikaþjálfara kvenna.  Deildin er ört vaxandi, með um 400 iðkendur.  Stúlkurnar sem eru lengst komnar í deildinni keppa í 1. og 2. þrepi á næsta keppnistímabili.  Einnig getur deildin státað sig af því að vera í nýju fimleikahúsnæði sem er mjög vel búið.   Áhugasamir hafi samband í netfangið maria@keflavik.is