Fimleikaáhöld óskast

Foreldrafélag og íþróttafélagið Neisti á Djúpavogi hefur ákveðið að hefja fimleikastarf. Félagið er hinsvegar mjög fátækt af áhöldum, tækjum og tólum til iðkunar og auglýsir því eftir ódýrum eða gefins áhöldum. Allt er vel þegið. Ef félög hafa áhuga á að styrkja þetta litla félag austur á fjörðum eru áhugasamir beðnir um að hafa samband við Ágústu Margréti Arnardóttur í síma 863-1475 eða á netfang agusta@gustadesign.is