Fyrirkomulag mótsins
Fyrri dagur 27.mars:
Keppt til úrslita í fjölþraut,
skv. reglum FIG alþjóðafimleikasambandsins, þ.e. hver hlýtur flest stig samanlagt á öllum áhöldum. Þeir keppendur sem vilja reyna að komast í úrslitakeppni á stökki, framkvæma tvö ólík stökk og meðaltalseinkunn gildir í úrslit. Fyrra stökkið gildir til einkunna í fjölþraut.
Fjölþrautameistarar 2009: Fríða Rún og Viktor.
Laugardagur fyrir hádegi:
|
Innmars
|
09:30
|
|
Keppni hefst
|
09:40
|
|
keppni lýkur
|
12:10
|
Laugardagur, eftir hádegi:
|
Innmars
|
14:00
|
|
Keppni hefst
|
14:10
|
|
keppni lýkur
|
16:20
|
Keppni í fjölþraut karla verður væntanlega jöfn og spennandi. Viktor hefur verið Íslandsmeistari síðast liðin 7 ár og hlotið titilinn 8 sinnum alls (2001, 2003-2009). Róbert Kristmannsson hefur verið að nálgast hann í stigum og náði hærri fjölþrautareinkunn á Heimsmeistaramótinu í haust. Ólafur Garðar er einnig í mikilli framför og verður því gaman að fylgjast með þessum strákum. Mikill sjónarsvipur er þó að Bjarki Ásgeirsson slasaðist fyrir stuttu og keppir ekki, en hefði án efa blandað sér í efstu sætin.
Kvennamegin hefur Thelma Rut átt hæstu fjölþrautareinkun síðastliðin tvö ár og var Íslandsmeistari 2008, en á góðum degi geta Birta Sól, Tinna, Dóra Sigurbjörg og Dominiqua veitt henni góða keppni.
Í unglingakeppninni sjáum við efnilega krakka sem eiga framtíðina fyrir sér. Jón Sigurður hefur hæstu fjölþrautarstigin en aðrir koma fast á eftir honum.
Þrjár stúlkur: Jóhanna Rakel, Norma Dögg og Ásdís Ósk hafa allar náð 46 stigum á þessu keppnistímabili og má því gera ráð fyrir hörkukeppni þar á milli. Jóhanna er Norðurlandameistari unglinga á slá og Ásdís Ósk var efst á unglingamóti í Noregi nú fyrir skömmu. Missir er þó af Emblu Jóhannesdóttur sem er að jafna sig eftir aðgerð á fæti.
Seinni dagur 28. mars : SPORTTV mun sýna beint frá úrslitum áhalda: www.sporttv.is
Keppt til úrslita á áhöldum, skv. keppnisfyrirkomulagi alþjóðafimleikasambandsins FIG. 5 hæstu í unglingahóp og 5 hæstu í fullorðinshóp, á hverju áhaldi frá fyrri degi, keppa um meistaratitil áhalds. Keppt er eftir Ólympískri keppnisröð á áhöldum þ.e. stökk, tvíslá og slá og gólf hjá konum en gólf, bogi, hringir, stökk, tvíslá og svifrá hjá körlum.
Sunnudagur:
|
Innmars
|
13:00
|
|
Keppni hefst
|
13:10
|
|
keppni lýkur
|
15:45
|
|
Áætluð mótslok
|
16:15
|