Íslandsmeistaramót í fjölþraut í áhaldafimleikum fór fram í dag. Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerplu og Viktor Kristmannsson, Gerplu hömpuðu titlunum Íslandsmeistarar 2010. Íslandsmeistarar unglinga urðu Norma Dögg Róbertsdóttir, Gerplu og Sindri Steinn Davíðsson Diego, Ármanni. Á morgun fer fram úrslit á áhöldum, sjá tímasetningu hér annars staðar á síðunni.
Keppendur komu frá 5 félögum að þessu sinni. Gerpla sendi flesta keppendur á mótið eða 9 karla og 13 konur. Ármann sendi 5 karla og 3 konur á mótið. Björk, Fylkir og Grótta sendu öll 1 konu á mótið. Önnur félög voru ekki með keppendur. Agnes Suto keppti sem gestur á mótinu og átti einkunn í annað sætið en hún er ekki íslenskur ríkisborgari en hefur búið og æft hérlendis undanfarin 5 ár.
Íslandsmeistari karla: Viktor Kristmannsson, Gerplu 79,750 stig
2. sæti: Róbert Kristmannsson, Gerplu 78,800 stig
3. sæti: Ólafur Garðar Gunnarsson, Gerplu 76.500 stig
Íslandsmeistari kvenna: Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerplu 50.550 stig
2. sæti: Dominiqua Belanyi, Gróttu 47.100 stig
3. sæti: Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Gerplu 45.650 stig
Íslandsmeistari unglinga: Sindri Steinn Davíðsson Diego, Ármanni 69.100 stig
2. sæti: Jón Sigurður Gunnarsson, Ármanni 68.550 stig
3. sæti: Sigurður Andrés Sigurðarson, Ármanni 63.800 stig
Íslandsmeistari unglinga: Norma Dögg Róbertsdóttir, Gerplu 46.450 stig
2. sæti: Jóhanna Rakel Jónasdóttir, Ármanni 45.500 stig
3. sæti: Ásdís Ósk Ástvaldsdóttir, Gerplu 43.450 stig