Frábært Íslandsmeistaramót fór fram nú um helgina við glæsilegar aðstæður í Laugabóli, fimleikahöll Ármanns. Á laugardeginum var keppt í fjölþraut og þar gátu einnig fimm hæstu einstaklingarnir á hverju áhaldi tryggt sér sæti í úrslitum á einstökum áhöldum sem fóru síðan fram á sunnudeginum.
Bræðurnir Viktor og Róbert Kristmannssynir háðu skemmtilega og jafna baráttu báða dagana. Viktor hafði betur fyrri daginn og stóð uppi sem sigurvegari í samanlögðu með 79,750 stig og tryggði sér því Íslandsmeistaratitillinn. Róbert var í öðru sæti með 78,800, Ólafur Garðar Gunnarsson fylgdi fast á eftir með 76,500 stig. Róbert stóð svo uppi sem sigurvegari á sunnudeginum og endaði sem fimmfaldur Íslandsmeistari en hann sigraði gólf, bogahest, stökk, tvíslá og svifrá. Ólafur Garðar sigraði svo í hringjunum.
Thelma Rut Hermannsdóttir Gerplu var sigurvegari helgarinnar hjá stúlkunum en hún sigraði fjölþrautina með nokkrum yfirburðum með 50,550 stig. Í öðru sæti var Dominiqua Belányi Gróttu með 47,100 og í þriðja var Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir Gerplu með 45,650 stig. Á sunnudeginum hélt Thelma uppteknum hætti og sigraði þrjú af fjórum áhöldum tvíslá, stökk og jafnvægisslá. Dominiqua Belányi sigraði gólfæfingarnar
Í unglingaflokki sigruðu þau Sindri Steinn Davíðsson Diego Ármanni og Norma Dögg Róbertsdóttir Gerplu. Úrslit áhalda urðu þau að Sindri sigraði gólf, stökk og tvíslá, Garðar Egill Guðmundsson Gerplu sigraði á bogahesti, Alexander Jens Ásgeirsson Ármanni hringjum og Altli Jasonarson Ármanni svifrá.
Hjá stúlkunum sigraði Jóhanna Rakel Jónasdóttir Ármanni á tvíslá og gólfi, Norma Dögg Róbertsdóttir Gerplu sigraði svo stökkið en þær stöllur urðu jafnar í fyrsta til öðru sæti á jafnvægisslá.
Úrslit: fjölþraut karla, fjölþraut kvenna, fjölþraut unglingaflokkur karla og fjölþraut unglingaflokkur kvenna.
Úrslit á áhöldum: karlar, konur, unglingaflokkur karla og unglingaflokkur kvenna.