Frá því í gær hafa hóparnir tveir frá Selfossi og Gerplu beðið eftir flugi til Helsinki til að taka þátt í Norðurlandamótinu í hópfimleikum.
Í gær var sú ákvörðun tekin, í samráði við þjálfarar og fararstjóra, að ef ekki yrði flogið fyrir kl. 15:00 í dag, yrði hætti við ferðina. Nú er ljóst að Helsinki flugvöllur er lokaður a.m.k. til kl. 15:00 laugardag.
Því telja framkvæmdastjóri og formaður FSÍ ekki forsvaranlegt að senda hóp út í þessa óvissu sem skapast hefur vegna eldgoss og öskufalls, þar sem ekki er ljóst hvort eða hvenær heimferð gæti orðið. Haft hefur verið samband við mótsstjóra og tilkynnt að íslenski hópurinn komi ekki til keppni að óviðráðanlegum orsökum. Fararstjóra hefur verið tilkynnt ákvörðunin.
Kveðja
Hrund og Þorgerður.