Evrópumót í Birmingham -

Íslenska landslið karla er halda átti til London og áfram til Birmingham síðasta föstudag, komst ekki vegna flugbanns en náðu að fljúga til Glasgow mánudagsmorgun.  Liðið er skipað þeim Viktori Kristmannssyni, Róberti Kristmannssyni og Ólafi Garðari Gunnarssyni.  Einn íslenskur keppandi er í junior-keppninni: Jón Sigurður Gunnarsson.  Þjálfarar þeirra eru Gennadyi og Axel Bragason, fararstjóri er Davíð Ingason.

Vegna þess hve seint þeir komu til Bretlands misstu þeir af einhverjum æfingum en vonandi kemur það ekki að sök. 

Jón Sigurður keppir á fimmtudag ásamt juniorum en keppni seniora fer fram á föstudag.

Fréttir má finna á heimasíðu UEG (tengill efst á þessari síðu hægra megin).

Vegna eldgoss hafa einhver lönd hætt við keppni.  Þau lönd sem kepptu í junior eru:  ARM-AUT-AZE-BEL-BUL-CRO-CYP-CZE-DEN-ESP-FIN-FRA-GBR-GER-GRE-HUN-IRL-ISL-ITA-LTU-MON-NED-NOR-POL-POR-ROM-SLO-SRB-SUI-SVK-TUR.  

Þau lönd sem keppa í senior keppninni eru: ARM-AUT-AZE-BEL-BLR-BUL-CRO-CYP-CZE-DEN-ESP-FIN-FRA-GBR-GEO-GER-GRE-HUN-IRL-ISL-ISR-ITA-LAT-LTU-LUX-NED-NOR-POL-POR-ROU-RUS-SLO-SRB-SUI-SVK-TUR.  Upplýsingar teknar af vef UEG.