Evrópumót kvenna í Birmingham

13 manna hópur frá Íslandi er staddur í Birmingham í Bretlandi til að taka þátt í Evrópumóti kvenna í áhaldafimleikum sem hefst 28.apríl.  Ísland sendir fullt lið seniora:  Birta Guðbrandsdóttir, Dóra S. GUðmundsdóttir, Dominiqua Belánýi, Thelma Rut Hermansdóttir, Tinna Óðinsdóttir .  Þjálfari þeirra í ferðinni er GUðmundur Þór Brynjólfsson.  Lið unglinga (junior) skipa: Ásdís Ósk Ástvaldsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Norma Dögg Róbertsdóttir og Jóhanna R. Jónasdóttir.  Þjálfari þeirra í ferðinni er Þorbjörg Gísladóttir.  Fararstjóri er Ásta Ísberg og dómarar eru þær Hlín Bjarnadóttir og Berglind Pétursdóttir.

Eldgos hefur verið að gera okkur erfiðara um vik að ferðast en hópurinn lét það ekki hafa áhrif á sig.  Keyrt var til Akureyrar á laugardag, beðið í röð fyrir utan flugstöðina í ískulda til að innrita sig.  Seinkun á flugi til Glasgow leiddi til að þær misstu af lestinni.  Leigðu bíl til að keyra hópinn til BIrmingham, 6 tíma ferð.  Komnar fyrir miðnætti á hótel eftir langt ferðalag - en fóru þó svo ótrúlega stutt!

Á sunnudag var farið á æfingar og fundi.  Allt gekk vel þó enn væri nokkur ferðaþreyta í flestum.  Á mánudag æfðu juniorar á podium, seniorar fá sína podium-æfingu í dag.

Upplýsingar og síðar úrslit má finna á heimasíðu mótsins: http://www.europeangymnastics2010.org/.  Eins má lesa fréttir á heimasíðu UEG: http://www.ueg-gymnastics.com/