Evrópumót kvenna - fréttir frá fararstjóra

Hér eru allar aðstæður á mótstað mjög góðar, gott skipulag og þægilegt andrúmsloft. Hótelið og höllin eru alveg í miðborginni þannig að auðvelt er að ganga á milli og ekki þarf að treysta á skipulagðar ferðir. Bæði juniorar og seniorar eru búnar með sínar podium æfingar og þær gengu ágætlega. Þar sem sumar voru að stíga sín fyrstu skref á podium varð vart við smá titring. Í dag eru síðan juniorarnir að fara að keppa, reyndar ekki fyrr en í kvöld, en seniorar eru með æfingu í dag kl. 12.00 og juniorar koma með og fylgjast með þeim hluta keppninnar sem eru í gangi á þeim tíma og eiga síðan að fara heim og hvíla sig og undirbúa sig fyrir sína keppni.

Kveðja heim, fararstjóri.