Keppni í fjölþraut í unglingaflokki fór fram í gær. Mjög skemmtileg keppni þar sem lið Rússa bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur. Lið Rúmeníu náði öðru sætinu og Ítalía vann frakka með 0.100 stiga mun.
Íslensku stúlkurnar, Jóhanna Rakel, Norma Dögg, Hildur og Ásdís Ósk áttu einnig góðan dag, samkvæmt samtali við Hlín Bjarnadóttur í morgun. Þær kepptu í sama riðli og rússarnir og komu á eftir þeim á áhöldin. Okkar stelpur sýndu frábærar æfingar á stökki, slá og gólfi þarf sem þær bættu sig allar frá Íslandsmóti. Af 24 liðum voru þær í 18.sæti á stökki, 24.á tvíslá, 15.sæti á slá og 17.á gólfi.
Mótið í gær var 14 tímar. Sömu dómarar dæmu allt mótið. Of eru mót á Íslandi löng en aldrei sem þetta. Dómararnir eiga þakkir skyldar fyrir þeirra störf. Íslensku dómararnir á Evrópumótinu eru Hlín Bjarnadóttir og Berglind Pétursdóttir.
Fimleikasambandið óskar stúlkunum og fylgdarliði til hamingju með árangurinn.
Hér má bera samaneinkunir stúlknanna frá Íslandsmóti og Evrópumóti.
| Jóhanna | stökk | tvíslá | slá | gólf | samtals |
| EM 10 | 12.300 | 6.775 | 12.325 | 12.375 | 43.775 |
| ÍM 10 | 12.400 | 8.500 | 13.150 | 11.450 | 45.500 |
| Norma | |||||
| EM 10 | 12.200 | 7.300 | 11.775 | 12.025 | 43.300 |
| ÍM 10 | 13.400 | 8.500 | 12.700 | 11.850 | 46.450 |
| Ásdís | |||||
| EM 10 | 11.900 | 7.500 | 11.000 | 12.225 | 42.625 |
| ÍM 10 | 12.050 | 8.200 | 11.300 | 11.900 | 43.450 |
| Hildur | |||||
| EM 10 | 11.725 | 11.075 | 22.800 | ||
| ÍM 10 | 12.250 | 7.650 | 9.950 | 11.350 | 41.200 |
Stúlkurnar í fullorðinsliðinu keppa í dag kl. 14 að íslenskum tíma og sendum við þeim góðar kveðjur.