Evrópumót kvenna - Birmingham

Evrópumóti kvenna í áhaldafimleikum er lokið.  Evrópumeistarar eru lið Rússlands með 168.325 stig, silfrinu náðu rúmensku stúlkurnar  eftir harða keppni við heimamenn. Rúmenar með166.800 stig og Bretar 165.300 stig.

Á mótinu lenti lið Íslands í 23.sæti og vann liðið Norðmenn og Dani en Finnar voru eina Norðurlandaþjóðin sem var hærri en íslenska liðið og því sama röð og á Norðurlandamótinu fyrr í mánuðinum.
Thelma Rut Hermannsdóttir náði bestum árangri íslensku stúlknanna  í fjölþraut og sú eina sem keppti á öllum áhöldum. Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir átti gott mót, (keppti á þremur áhöldum), Tinna Óðinsdóttir keppti á tveimur áhöldum, Dominiqua Belany keppti einnig á tveimur áhöldum og þá keppti Birta Sól Guðbrandsdóttir einungis á tvíslá.