Landsliðsæfing EM hóp-junior 2010

Tilkynning um landsliðsæfingu 20. maí 2010.
 
Við viljum minna á seinni landsliðsæfingu í úrtaki fyrir EM juniora 2010 í Malmö.
 
Æfingin er opin öllum þeim sem að skráðir voru á fyrri æfinguna sem fór fram 1. maí. Þeir sem telja sig þurfa að mæta aftur og sýna sig er velkomið að koma. Einnig hvetjum við þá sem sáu sér ekki fært að mæta á fyrri æfinguna til að mæta. Æfingin fer fram í Stjörnunni, Garðabæ og byrjar kl 18:00. Áætlað er að hún standi yfir í um 3 tíma.
 
Hlökkum til að sjá ykkur.
 
F.h. þjálfarteymisins,
Jimmy Eksted