Nú í maí mánuði hefur tækninefnd hópfimleika staðið fyrir tveimur opnum landsliðsæfingum unglinga með það að markmiði að velja úrvalshóp fyrir keppni á Evrópumótinu í haust (EM). Um 50 stúlkur mættu á æfingarnar og ljóst að margar efnilegar hópfimleikastúlkur æfa á Íslandi. Þeim, þjálfurum þeirra og félögum er öllum þökkuð þátttakan.
Nú hefur THF og þjálfarateymi EM 2010 valið saman 23 stúlkur sem fá tækifæri að æfa í hópnum í sumar og keppast um að komast í fyrsta unglingalandslið Íslands í hópfimleikum.