Tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum hefur tekið ákvörðun um að stig til að klára keppnisþrep í Íslenska fimleikastiganum 2009-2012 verði eftirfarandi:
5. þrep - 3. þrep 53,000 stig
2. þrep - 1. þrep 42,000 stig
Hægt er að klára/ná þrepi á öllum mótum Fimleikasambands Íslands.
Hægt er að byrja að æfa og keppa í Fimleikastiganum í hvaða þrepi sem er án þess að hafa náð þrepinu fyrir neðan. Einnig er hægt að sleppa þrepi eða þrepum úr og TKV hvetur þjálfara til að nýta sér þennan möguleika ef geta einstaklingsins býður upp á það.
TKV áskilur sér rétt til breytinga á stigafjölda ef þurfa þykir.