Fimleikadeild Fjölnis óskar eftir þjálfurum frá og með næsta hausti. Deildin leitar að þjálfurum bæði fyrir áhalda og hópfimleika. Í boði eru samkeppnishæf laun og önnur fríðindi. Fimleikadeildin hefur verið í örum vexti og hefur fengið nýtt og betra húsnæði í Egilshöll.
Nánari upplýsingar um þessi störf veitir Halla Karí í síma 661 6520. Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn með ferilskrá á netfangið fimleikadeild.fjolnir@gmail.com