Fimleikar eru fyrir alla.

 

Nefnd um fimleika fyrir alla, FFA hefur ákveðið að halda sýningarkeppni í hópatriðum í lok nóvember næsta haust. Fyrirmyndin af þessu keppnisformi er Gym for live sem Alþjóðafimleikasambandið hélt í fyrsta skiptið í Dornbirn Austurríki í fyrra sumar. Sú keppni er haldin 4 hvert ár og verður næst í Cape Town Suður- Afríku 2013.
 
Fyrirkomulagið er á þann veg að hópar sýna/keppa sitt fimleikaatriði, eftir keppnina fá þjálfarar umsögn um atriðið hvað var gott og hvað mætti gera betur. Öll lið sem keppa fá annað hvort gull, silfur eða brons medalíu og þeir sem fá gullið standa uppi sem sigurvegarar.
Keppninni verður skipt niður í 3 flokka, 16 ára og yngri, 17 ára og eldri og svo blandaða hópar (það er hópar með strákum og stelpum).   Síðan er hópunum einnig skipt eftir stærð,  20 og færri í hóp og svo 21 eða fleiri.
Gólfflötur verður 14m x 20m (hópfimleikadýnur) eða sýnt/keppt á parketinu/dúknum ef vill.
Atriðið má vera hámark 3 mínútur og notast má við hvaða áhöld eða fylgihluti sem hver vill og kemur með.
Dómarar verða 5 og dæma eftir skemmtanagildi atriðisins, frumleika, fjölbreytni, tækni, áhrifum, heildarmynd, nýung, kunnáttu, gæðum og öryggi.
 
Félög geta samið ný fimleikaatriði eða notað eldri (t.d. það sem þau sýndu á vorsýningu). Það er því leikur einn að taka þátt í þessari keppni sem verður líka nokkurs konar sýning en margir hafa saknað desembersýningu Fimleikasambandsins.
Mótagjöld verða 1600 krónur á iðkanda, en þeir sem ekki greiða þjónustugjöld til FSÍ borga 1800 krónur á iðkanda.
Þessi keppni er liður í því að virkja fimleika fyrir alla og vonumst við til að landsbyggðin verði sérstaklega dugleg að skrá sig til leiks.
Í athugun er húsnæði fyrir þetta nýja mót 20. eða 27. nóvember.