Í lok keppnistímabils er ekki úr vegi að fara yfir þátttöku á FSÍ mótum vetrarins. Alls voru 3485 keppendur skráðir á mót 2009-2010. Þar af voru 62% skráðir á hópfimleikamót, 28% á áhaldafimleikamót og 10% á mót í almennum fimleikum.
60% keppenda kepptu fyrir félög af Höfuðborgarsvæðinu og 40% fyrir félög utan hennar. 23% keppenda keppa fyrir Kópavog, 15% fyrir Selfoss, 16% fyrir Reykjavík.
58% af keppendum Höfuðborgarinnar kepptu í hópfimleikum, 40% í áhalda og 2% í almennum fimleikum. Á móti 69% af keppendum utan Höfuðborgarinnar kepptu í hópfimleikum, 10% í áhalda- og 21% í almennum fimleikum.
Af öllum keppendum í hópfimleikum koma 56% frá Höfuðborgarsvæðisinu og í áhaldafimleikum koma 85% frá svæðinu meðan 88% keppenda í almennum fimleikum koma utan svæðisins.