EUROGYM-sýning

Hóparnir sem eru á leið til Odense í júlí ætla að taka eina undirbúningsæfingu saman nú 24.júní í Versölum, Kópavogi.  Þar fá félögin tækifæri til að keyra sína 10 mínútna sýningu sem þau ætla að sýna á torgum Odense. 

Sýningin hefst kl. 19:15 og lýkur um kl. 20:30

Í lok sýningar er ætlunin að stilla upp fyrir hópmyndatöku í Íslandsbúningnum.