Í Poortugaal í Hollandi býr ung íslensk stúlka Eyþóra Þórsdóttir, 11 ára. Nú á sunnudaginn varð hún Hollandsmeistari í stúlknaflokki (f.1997-1998) á slá með 12,300. Heldur betur frábær árangur það.
Eyþóru hefur gengið mjög vel í fimleikum og hefur verið boðið að koma í landsliðstest í ágúst til að reyna að komast í hollenska unglinga landsliðið. Þá þarf hún reyndar að hafa hollenskan ríkisborgararétt sem hún hefur ekki enn.
Eyþóra æfir Topsport hjá Pro Patria í Zoetermeer hjá einum virtasta fimleikaþjálfara Hollendinga, Frank Louter, 6 daga í viku samtals 28,5 tíma, frí á laugardögum. Þar er æft tvisvar á dag 3 morgna, 07:30-10:00. Síðan er skóli og aftur æfing seinni partinn 15:30-19:00. Þetta breytist síðan í haust en þá fer æfingatíminn í 33,5 tíma á viku, við bætast 2 morgnar. Til Zoetermeer frá Poortugaal (þorp í Hollandi) þar sem hún býr er u.þ.b. 40 mínútna akstur. Sumarfríið í skólanum eru 6 vikur en 3 vikur í fimleikum.
Í Eredivisie (flokkinum sem Eyþóra keppir í) eru 3 forkeppnir: undanúrslit og síðan tveggja daga úrslitakeppni: fjölþraut og úrslit á áhöldum.
Að sögn Þórs Thorarensen, föður Eyþóru hafa fimleikarnir gengið vel í vetur. Að vísu tábraut hún sig fyrir jól og þurfti því að æfa skv. því í nokkrar vikur. Hún var í 2. sæti í undanúrslitum 30. maí með 46,300 stig og í 7. sæti í fjölþrautarkeppninni 19. júní með 43,500 og í náði síðan 1. sæti á slá (Hollandsmeistari unglinga á slá) á úrslitadaginn. Það leit ekki vel út því að á lokaæfingu á föstudeginum fyrir keppnina tognaði hún og marðist illa á fæti og var því alveg óvíst hvort hún gæti tekið þátt í henni. En hún beit heldur betur á jaxlinn og lét meiðslin ekki aftra sig með þessum frábæra árangri.
Það verður gaman að fylgjast með þessari ungu og efnilegu stúlku í framtíðinni og hver veit nema hún komi og keppi á Íslandi áður en langt um líður.
Hér má sjá myndir af Eyþóru í fimleikum.

Eins er hægt að sjá sláaræfinguna hennar á youtube: http://www.youtube.com/watch?v=tlillkBY5rU