Sérgreinahluti 1C - 28. - 29. ágúst á Akureyri

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið sérgreinahluta 1A. 

Bóklegir hlutar eru hlutverk þjálfarans II, undirbúningur yngri iðkenda fyrir keppni og forvarnir og meiðsli í fimleikum. Í verklegum hlutum er lögð áhersla á upphitun framhaldshópa, grunnæfingar og æfingar á gólfi, litlu og stóru trampólíni, tvíslá/rá og stökki.
Námskeiðið er 20 kennslustundir og námskeiðsgjald 12.000 kr. Áætlaður fjöldi þátttakenda er 15 manns. Skráning skal berast skrifstofu FSÍ á netfangið fsi@isisport.is fyrir 19. ágúst, þar þarf að koma fram fullt nafn, kennitala, sími, netfang og nafn félags ef svo ber undir. Námskeiðið er haldið í samráði við Fimleikafélag Akureyrar.