Æfingabúðir Fimleikahringsins

Æfingabúðirnar standa yfir í einn dag og eru ætlaðar iðkendum á aldrinum 8-16 ára.

Æfingabúðirnar fara fram í glæsilegu fimleikahúsi Gerplu Versölum 3, 201 kópavogi. KORT
Þjálfarar æfingabúðanna er hópurinn sem stóð fyrir fimleikahringnum í sumar. Í hópnum eru Íslandsmeistarar í hópfimleikum kvenna og karla og þjálfarar þeirra.
Æfingabúðirnar eru fyrir þá sem hafa æft hópfimleika eða ætla að hefja iðkun hópfimleika í vetur. Námskeiðið hentar einnig vel fyrir iðkendur í áhaldafimleikum sem langar að prófa hópfimleika.
Æfingabúðirnar kosta 2.500 kr. innifalið í verðinu holl máltíð í hádeginu, sundferð og gisting frá föstudegi til laugardags fyrir þá sem koma utan af landi. Greitt er við upphaf námskeiðisins, hægt er að greiða með korti.
Þjálfarar eru velkomnir á námskeiðið með iðkendum sínum til að fylgjast með og greiða þeir ekkert fyrir það.
Áherslu verður lögð á að undirbúa iðkendur fyrir komandi tímabil. Fyrir hádegi verður farið ítarlega í tæknilegar grunnæfingar sem nauðsynlegar eru til árangurs í hópfimleikum. Eftir hádegi verða grunnæfingarnar tengdar við framkvæmd flóknari æfinga.
 
Skráning og nánari upplýsingar er að finna á: