11. – 12. september allir þátttakendur mæta í bóklega kennslu fyrir hádegi á laugardegi og hópur 1 klárar einnig verklega hluta.
18. – 19. september (ef þörf er á) hópur 2 klárar verklegan hluta.
Námskeiðið er ætlað þeim sem eru að hefja þjálfaramenntun sína í fimleikum. Áhersla lögð á hlutverk þjálfarans, virkni í þjálfun, öryggisþætti, upphitun, leiki og grunnæfingar.
Námskeiðið er haldið á höfuðborgarsvæðinu og er 20 kennslustundir bæði bóklegir og verklegir hlutar, námskeiðsgjald er 12.000 kr.
Áætlaður fjöldi þátttakenda á námskeiði er 30 manns. Skráning skal berast skrifstofu FSÍ á netfangið
fsi@isisport.is fyrir 2. september, þar þarf að koma fram fullt nafn, kennitala, sími, netfang og nafn félags ef svo ber undir.