Íslenskur dómari á Ólympíuleikum ungmenna í Singapore.

Á Ólympíuleikum ungmenna sem fram fara í Singapore þessa dagana dæmir einn Íslendingur fimleikakeppni karla. Anton Þórólfsson var fyrr á þessu ári valinn af Alþjóðlega Fimleikasambandinu (FIG) til að dæma fimleikakeppnina á Ólympíuleika ungmenna. Anton er í boði Alþjóðasambandsins á meðan á leikunum stendur. Það er mikill heiður fyrir íslenskt fimleikafólk að eiga dómara á svo stóru móti.
Hægt er að fylgjast með keppninni á http://www.youtholympicgames.org/