Sambandsdómaranámskeið KK - 4. - 5. september 2010

Sambandsdómaranámskeið verður haldið í húsnæði ÍSÍ, Engjavegi 6, 104 Reykjavík. dagana frá og með 3. sept. til og með 5. sept. 2010. Námskeið í almennum dómarareglum og sérreglum Íslenska fimleikastigas verður haldið dagana 3. og 4. sept. Próf úr námskeiðsefni verða svo haldin þann 5. sept.  Nánari dagskrá námskeiðsins verður gefin út síðar. Einstaklingar fæddir ´94 eða fyrr geta skráð sig til þátttöku. Tækninefnd karla veitir einstaklingum fæddum ´95 undanþágu til að sitja námskeiðið og taka próf, en þeir einstaklingar eru ekki gjaldgengir á mót á vegum FSÍ fyrr en árið 2011. Almennar dómarareglur FIG má finna á (fig-gymnastics.com undir Rules / MAG) og Íslenska fimleikastigann má finna heimasíðu FSÍ (www.fimleikasamband.is undir Nefndir). Tekið er á móti skráningum á skrifstofu FSÍ (fsi@isisport.is). Skráningar verða hafa borist skrifstofu FSÍ í síðasta lagi þann 1. sept. 

 

Ath. Prófað verður sérstaklega úr skilningi og innihaldi efnis og æfinga Íslenska fimleikastigans. Aðeins verður prófað úr innihaldi þrepa II., III., IV. og V.