Ath. Allir handhafar dómararéttinda sem ætla sér að dæma mót á komandi keppnistímabili, sem haldin eru á vegum FSÍ í Íslenska fimleikastiganum, verða að taka próf úr skilningi og innihaldi æfinga Íslenska fimleikastigans sunnudaginn 5. september. Þeir dómarar sem ekki taka/standast það próf verða ekki gjaldgengir á mótum í fimleikastiganum á vegum FSÍ. Landsdómarar og aðlþjóðlegir dómarar sem ekki taka/standast prófið hafa þó heimild til að dæma I. þrep Íslenska fimleikastigans á FSÍ mótum.
Jafnvel þótt handhafar gildandi dómararéttinda, sambands-, lands- eða alþjóðlegra, þurfi aðeins að taka próf úr skilningi og innihaldi efnis og æfinga Íslenska fimleikastigans eru þeir eru samt sem áður hvattir til að mæta á dómaranámskeiðið (3.-5.sept.) til upprifjunnar.
Með kveðju
Tækninefnd karla í áhaldafimleikum FSÍ