Helgina 28.-29. ágúst n.k. verður þjálfaranámskeið 1C haldið á Akureyri.
Námskeiðið er ætlað þeim sem lokið hafa sérgreinahluta FSÍ 1A.
Kennsla fer fram í nýju húsnæði Fimleikafélags Akureyrar í samvinnu við félagið og er Florin Pau tengiliður við FSÍ.
Laugardagur 28. ágúst
9:00 – 12:00 fyrirlestrar, kennari Hlín Bjarnadóttir
Hlutverkaþjálfarans II
Undirbúningur yngri iðkenda fyrir keppni í fimleikum
Meiðsli og forvarnir í fimleikum
13:00 – 17:00 verkleg kennsla, kennari Þröstur Hrafnsson
Æfingar á litlu og stóru trampolíni
Sunnudagur 29. ágúst
Verkleg kennsla, kennari Guðmundur Þór Brynjólfsson
9:00 – 9:45 upphitun og grunnæfingar framhaldshópa
9:45 – 12:00 æfingar á gólfi
13:00 – 16:00 æfingar á rá/tvíslá og stökki
16:15 námskeiðslok
Skyldumæting er í alla hluta námskeiðsins. Í verklega tímum skulu þátttakendur klæðast viðeigandi íþróttafatnaði. Munið eftir skriffærum í verklega og bóklega tíma.
Föstudagur 27. ágúst kl:18:00 – 20:30 fræðsla um undirbúning og framkvæmd fimleikamóta fyrir stjórnarfólk, þjálfara, foreldra og aðra áhugasama fyrirlesari Hlín Bjarnadóttir
Laugardaginn 28. ágúst kl 17:00 – 18:00 er kynning fyrir áhugasama á forriti fyrir fimleikaþjálfara, Sportplaner, á vegum Þrastar Hrafnssonar.
Fræðslunefnd FSÍ