Valdar hafa verið 14 stúlkur og 2 varamenn til þess að taka þátt í undirbúningi fyrir Evrópumót unglinga í hópfimleikum sem fram fer í Malmö í 19. -24. október 2010. Stúlkurnar koma úr fjórum félögum. Fimleikasambandið óskar þeim og félögum þeirra til hamingju með útnefninguna.
Nú taka við æfingar að fullu hjá þeim fram að móti og þar sem þær leggja metnað sinn og kraft í að vera sem best undirbúinn fyrir mótið. Þá verða sameiginlegar æfingar þó nokkrar á undirbúningstímabilinu, ásamt því að þær æfa með sínu félagsliði.
Eftirtaldar stúlkur hafa verið valdar:
Agnes Þóra Sigþórsdóttir, Gerplu.
Andrea Sif Pétursdóttir, Stjörnunni.
Andréa Valdimarsdóttir, Gerplu.
Eva Grímsdóttir, Selfossi.
Harpa Guðrún Hreinsdóttir, Stjörnunni.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfossi.
Ingunn Jónasdóttir, Gerplu.
Kristín Björg Bergþórsdóttir, Björk.
Rakel Másdóttir, Gerplu.
Salvör Rafnsdóttir, Gerplu.
Sólveig Ásta Bergsdóttir, Ármanni.
Valgerður Sigfinnsdóttir, Ármanni.
Þorbjörg Hekla Ingólfsdóttir, Björk.
Þórey Ásgeirsdóttir, Björk.
Varamenn
Ásta Björk Gunnarsdóttir, Björk.
Sigrún Lind Hermannsdóttir, Gerplu.
Fyrir hönd FSÍ,
Gyða Kristmannsdóttir, Íris Svavarsdóttir og Jimmy Eksted.