Haldið í fundarsal D, ÍSÍ húsinu, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.
Dagsskrá.
Laugardagur 4. sept.
09:00 - 12:00 Almennar dómarareglur/sérreglur fimleikastigans
12:00 - 12:30 Hádegishlé
12:30 - 16:00 Dæmingar
Sunnudagur 5. sept.
10:00 - 12:00 Verklegt próf í dæmingum
12:00 - 13:00 Hádegishlé
13:00 - 15:00 Bóklegt próf í almennum dómarareglum og bóklegt próf í þekkingu og skilningi á sérreglum og æfingainnihaldi Íslenska Fimleikastigans í
II., III., IV. og V. þrepi.
Einstaklingar fæddir ´94 eða fyrr geta skráð sig til þátttöku. Tækninefnd karla veitir einstaklingum fæddum ´95 undanþágu til að sitja námskeiðið og taka próf, en þeir einstaklingar eru ekki gjaldgengir á mót á vegum FSÍ fyrr en árið 2011. Almennar dómarareglur FIG og Íslenska fimleikastigann má finna heimasíðu FSÍ (www.fimleikasamband.is). Tekið er á móti skráningum á skrifstofu FSÍ (fsi@isisport.is). Skráningar verða hafa borist skrifstofu FSÍ í síðasta lagi þann 3. sept.
Ath. Prófað verður sérstaklega úr skilningi og innihaldi efnis og æfinga Íslenska fimleikastigans. Aðeins verður prófar úr innihaldi þrepa II., III., IV. og V.
Ath. Allir handhafar dómararéttinda sem ætla sér að dæma mót á komandi keppnistímabili, sem haldin eru á vegum FSÍ í Íslenska fimleikastiganum, verða að taka próf úr skilningi og innihaldi æfinga Íslenska fimleikastigans. Þeir dómarar sem ekki taka/standast það próf verða ekki gjaldgengir á mótum í fimleikastiganum á vegum FSÍ. Landsdómarar og alþjóðlegir dómarar sem ekki taka/standast prófið hafa þó heimild til að dæma I. þrep Íslenska fimleikastigans á FSÍ mótum.
Jafnvel þótt handhafar gildandi dómararéttinda, sambands-, lands- eða alþjóðlegra, þurfi aðeins að taka próf úr skilningi og innihaldi efnis og æfinga Íslenska fimleikastigans eru þeir eru samt sem áður hvattir til að mæta á námskeiðið til upprifjunnar.
Með kveðju
Tækninefnd karla í áhaldafimleikum FSÍ