Tækninefnd KVK

 

TKV


Berglind Pétursdóttir berglinp@centrum.is 899-2367
Hlín Bjarnadóttir hlinbjarna@hotmail.com 695-1237
Sandra Árnadóttir thjalfarinn@gmail.com 694-8882
Sif Pálsdóttir sifpals@gmail.com 690-5900
Þorbjörg Gísladóttir thorbjorg@armenningar.is  698-1436

 

Tækninefndir skulu skipaðar alþjóðlegum dómurum eða landsdómurum ef þess er nokkur kostur. Leitast skal við að formaður sé alþjóðlegur dómari. Iðkendur/ virkir keppendur skulu ekki eiga sæti í tækninefndum. Sé þess nokkur kostur skulu starfandi þjálfarar, einkum afreksfólks, heldur ekki eiga sæti í tækninefndum. Verði ekki hjá því komist skulu þeir (þjálfararnir) aldrei koma að neinni umfjöllun eða ákvörðun mála, sem snertir þá sjálfa eða þeirra iðkendur/keppendur. Komi slík mál til umfjöllunar og ákvörðunar í nefndunum skulu þeir (nefndarmenn) ætíð víkja af fundi og þess getið með skírum hætti í fundargerð.
Formenn nefnda skulu á sama hátt aldrei vera starfandi þjálfarar virkra keppenda.
 
Tækninefndarfólk skal skipa með sér verkum samkvæmt eftirfarandi;
  1. Formaður:       
·         sér um að boða fundi nefndarinnar og stjórna þeim,
·         skal sitja framkvæmdaráðsfundi og gera grein fyrir störfum nefndarinnar þar,
·         skal vera samstarfsaðili tilskipaðs stjórnarmanns FSÍ um kynningu málefna fyrir stjórn.
  1. Varaformaður
·         gegnir störfum formanns í forföllum hans
  1. Ráðgjafi um menntun:           
·         skal vera samstarfsaðili tilskipaðs stjórnarmanns um menntunarmál þjálfara og dómara.
  1. Meðstjórnendur:                     
·         skulu vinna að þátttöku og stefnumótun hinna ýmsu mála sem undir nefndina falla.
Ef fjöldi nefndarmanna er oddatala skal atkvæði formanns gilda sem tvö.
 
Starfssvið nefndanna skal vera;
 
  1. Að sjá um menntun dómara skv. þeirri stefnu sem ákveðin er í samráði við stjórn.
  2. Að tilnefna dómara í landskeppnir og sjá um mót á vegum FSÍ hvað viðkemur dómurum.
  3. Að ákveða og leggja fram kröfur og lágmörk fyrir mót ár fram í tímann eigi síðar en 1.júní ár hvert.
  4. Að hausti og eigi síðar en 15.október skulu tækninefndir funda með stjórn og gera áætlun um í hvaða mótum erlendis þær leggja til að tekið verði þátt á komandi keppnistímabili.
  5. Leggja fram tillögur til stjórnar FSÍ um keppendur í landskeppnir, samkvæmt reglum viðkomandi móta varðandi tilkynningaskyldu.
  6. Að gera tillögu til stjórnar FSÍ um landsliðsþjálfara í verkefni landsliðs.
  7. Að taka ákvarðanir um innihald móta FSÍ og tilkynna það stjórn eigi síðar en 1. júní ár hvert.
  8. Að leggja fyrir stjórn drög að keppnisformi og innihaldi móta ár fram í tímann.
  9. Að undirbúa mót FSÍ hvað viðkemur tæknilegri framkvæmd í samstarfi við mótshaldara.