Kröfur móta KK 2010-2011


Mót FSÍ keppnistímabilið 2010-2011

Haustmót í þrepum
1. og 2. þrep. - Keppt til verðlauna á einstökum áhöldum
3.-4. og 5. þrep. - Keppt til verðlauna í fjölþraut                               
 
Haustmót í frjálsum æfingum - Keppt til verðlauna á einstökum áhöldum
Aldursflokkar:
Drengir 12-14 ára. Drengjareglur
Piltar 15-16 ára. Fig junior reglur (ef næg þátttaka annars sameinað í 15-18 ára)
Unglingar 17-18 ára. FIG junior reglur
Karlar 19 ára og eldri. FIG reglur

 
Þorramót í frjálsum æfingum - Keppt til verðlauna í fjölþraut
Aldursflokkar:
Drengir 12-14 ára. Drengjareglur
Piltar 15-16 ára. Fig junior reglur (ef næg þátttaka annars sameinað í 15-18 ára)
Unglingar 17-18 ára. FIG junior reglur
Karlar 19 ára og eldri. FIG reglur
 
Þrepamót - Keppt til verðlauna í fjölþraut og á einstökum áhöldum           
1.-2.-3.-4. og 5.þrep
 
Bikarmót - Liðakeppni
3.-4.-5. þrep. 6 í liði – 6 keppa – 4 telja
1. og 2. þrep. 5 í liði – 5 keppa – 3 telja         
Frálsar æfingar. 5 í liði – 4 keppa – 3 telja
 
Íslandsmót í þrepum - Keppt til verðlauna í fjölþraut
Á Íslandsmóti í þrepum fer fram úrslitakeppni í hverju keppnisþrepi og er keppendum ekki skipt í aldursflokka. Að gefnu tilefni er þjálfurum bent á að kynna sér reglur varðandi hámarksaldur keppenda í þrepum. Reglurnar má finna í handriti Íslenska fimleikastigans 2009-2012. Krýndir verða Íslandsmeistarar í 5.-4.-3.-2. og 1. þrepi Íslenska fimleikastigans. Fjöldi keppenda á mótið er takmarkaður og veita hæstu fjölþrautarstig í hverju þrepi eftir Þrepamót og Bikarmóti þátttökurétt. Tækninefnd karla áskilur sér rétt til að heimila þátttöku gestakeppenda á Bikarmóti í þrepum vegna vals á keppendum til þátttöku á Íslandsmóti í þrepum.
 
Fjöldi keppenda á Íslandsmóti í þrepum:
5. þrep             12 efstu
4. þrep             10 efstu
3. þrep              8 efstu
2. þrep              6 efstu
1. þrep              6 efstu
 
Mílanó Meistaramót - Keppt til verðlauna í fjölþraut og á einstökum áhöldum
Aldursflokkar:
Drengir 12-14 ára. Drengjareglur
Piltar 15-16 ára. Fig junior reglur (ef næg þátttaka annars sameinað í 15-18 ára)
Unglingar 17-18 ára. FIG junior reglur
Karlar 19 ára og eldri. FIG reglur
 
Íslandsmót unglinga - Keppt til verðlauna í fjölþraut og á einstökum áhöldum
Aldur 14-18 ára. FIG junior reglur
 
Íslandsmót karla - Keppt til verðlauna í fjölþraut og á einstökum áhöldum
Aldur 19 ára og eldri. FIG reglur
 
Aldursflokkar
Í einstaklingskeppni er aldursflokkaskipting skv. Móta- og keppnisreglum FSÍ og fjölda þátttakenda. Athygli skal vakin á skiptingu í aldursflokka.
 
Aldursflokkar í þrepum:
5.þrep 9-10 ára
4.þrep 12 ára og yngri
3.þrep 14 ára og yngri
2.þrep 16 ára og yngri
1.þrep 18 ára og yngri
Tk áskilar sér rétt til að skipta upp aldursflokki í hverju þrepi ef næg þátttaka verður.
 
Aldursflokkar í frjálsum æfingum Haustmót - Þorramót - Meistaramót:
Drengir 12-14 ára. Drengjareglur
Piltar 15-16 ára. Fig junior reglur (ef næg þátttaka annars sameinað í 15-18 ára)
Unglingar 17-18 ára. FIG junior reglur
Karlar 19 ára og eldri. FIG reglur
 
Skráning á mót
Skráning á mót FSÍ fer fram í gegnum FELIX. Hvert félag skal skrá a.m.k. einn dómara fyrir hverja 4 keppendur. Dæmi: 1-4 keppendur þá 1 dómari. 5-8 keppendur þá 2 dómarar o.fr. Ef dómari dæmir 2 hluta á sama móti er hann talinn tvisvar. Skráningar á mót teljast ekki fullnægjandi ef skráningu dómara vantar og verður þar af leiðandi ekki tekin gild. Strangt verður tekið á þessum reglum. Þeim félögum sem ekki eiga dómara er bent á þann möguleika að vera í samstarfi við þau félög sem eiga dómara. Öll forföll á mót skulu tilkynnt til FSÍ með góðum fyrirvara svo vinna við undirbúning móta riðlist ekki að óþörfu.
 
Af gefnu tilefni vill tækninefnd karla FSÍ minna þjálfara og keppendur á gildanda reglur varðandi fatnað keppenda á FSÍ mótum. Keppnisfatnaður skal vera í samræmi við reglur FIG á öllum mótum FSÍ. Sé þessum reglum ekki fylgt eftir verður frádrætti beitt samkvæmt reglum FIG. Þetta gildir um keppni í bæði frjálsum æfingum og þrepum.
 
Allar athugasemdir, spurningar eða ábendingar vegna kröfu móta skulu sendar á netfangið fsi@isisport.is.
 
Nefndin óskar keppendum, þjálfurum, dómurum og starfsfólki góðs gengis og góðrar skemmtunnar á komandi mótum FSÍ. 
 
Fh. Tækninefndar karla FSÍ
Axel Bragason