Kröfur móta KVK frjálsar 2010-2011

Keppt verður eftir alþjóðlegum dómarareglum FIG.

Aldursflokkar í frjálsum æfingum
Keppt er í þremur aldursflokkum í frjálsum æfingum. Kvennaflokki (senior), unglingaflokki (junior) og stúlknaflokki (youth). Í frjálsum æfingum eru aldursflokkar ekki sameinaðir.
 
                                               ALDUR                      2010               2011
Kvennaflokkur (senior)           16 ára og eldri            ’94 og fyrr            ’95 og fyrr
Unglingaflokkur (junior)         13-15 ára                    ’95, ’96 og ’97       ’96, ‘97 og ‘98
Stúlknaflokkur (youth)           12 ára og yngri           ’98 og seinna       ’99 og seinna
 
INNIHALD MÓTA
 
Haustmót 2010                     Einstök áhöld. Keppt í öllum aldursflokkum.
 
Þorramót 2011                      Fjölþraut. Keppt í öllum aldursflokkum.
 
Bikarmeistaramót 2011       Liðakeppni: 5 í liði – 4 keppa – 3 telja til stiga á hverju áhaldi.
 
Íslandsmeistaramót 2011    Þátttökuskilyrði eru að vera keppandi í frjálsum æfingum eða 1.þrepi á keppnistímabilinu 2010-2011.
 
Laugardagur:                           Fjölþraut. Keppt í Kvenna- og Unglingaflokki.
Sunnudagur:                            Úrslit á áhöldum. Keppt í Kvenna- og Unglingaflokki. 5 bestu komast í úrslit á hverju áhaldi í hvorum aldursflokki fyrir sig.
 
Meistaramót                          Fjölþraut og einstök áhöld: Kvennaflokkur, Unglingaflokkur og Stúlknaflokkur.
 
TKV hvetur félög til þess að halda boðsmót og að sækja mót erlendis til þess að fá frekari keppnisreynslu. 
 
Skráning á mót
Eins og kunnugt er eiga félög að skrá nöfn dómara um leið og skráning keppanda fer fram eða eða fjórum vikum fyrir mót. Mikilvægt er að forföll séu tilkynnt til FSÍ sem allra fyrst þar sem þau hafa áhrif á hópaskipan og tímasetningar móta. Félög eiga að senda inn einn dómara fyrir hverja þrjá keppendur. Á Bikarmóti skal senda minnst tvo dómara á lið. Ekki verður tekið við skráingum þar sem nöfn dómara vantar.
 
Að gefnu tilefni er ítrekað að mót FSÍ eru einungis ætluð þeim keppendum sem náð hafa góðu valdi á keppnisæfingum sínum. Það er ekki jákvæð reynsla fyrir iðkendur að ráða ekki við æfingar sínar.
Við hvetjum þau félög sem hafa spurningar varðandi ofangreind atriði að hafa samband við meðlimi TKV eða skrifstofu FSÍ.
 
                                                                        Með von um gott fimleikaár
                                                                                    Tækninefnd kvenna (TKV)