Kröfur móta KVK í þrepum 2010-2011

Keppt verður eftir dómarareglum Íslenska fimleikastigans (leiðréttri útgáfu haustið 2010) ásamt alþjóðlegum dómarareglum FIG.

INNIHALD MÓTA
 
Haustmót 2010
          1. og 2. Þrep:                  Einstök áhöld. Mótið er haldið með frjálsum æfingum
          3.,4. og 5. Þrep               Fjölþraut.
 
Þrepamót 2011                      Fjölþraut og einstök áhöld.
 
Bikarmeistaramót 2011       Liðakeppni: Hvert félag má einungis senda eitt lið í hverju þrepi.
          1. og 2. Þrep:                  5 í liði, 5 keppa á áhaldi og 3 telja til stiga á áhaldi.
          3.,4. og 5. Þrep               6 í liði, 6 keppa á áhaldi og 4 telja til stiga á áhaldi.
 
Íslandsmót 2011                   Fjölþraut. Íslandsmeistari í hverju þrepi. Fjöldatakmörkun er á mótið og gilda hæstu fjölþrautarstig frá þrepamót eða bikarmóti.
          1. þrep                           6 efstu  
          2. þrep                           6 efstu
          3. þrep                           12 efstu
          4. þrep                           14 efstu
          5. þrep                           16 efstu
 
Aldursflokkar
Í einstaklingskeppni er aldursflokkaskipting skv. Móta- og keppnisreglum FSÍ. Í 5. þrepi (9 ára, 10 ára, 11 ára og 12 ára og eldri). Í 4.þrepi (9-10 ára, 11 ára, 12 ára og 13 ára og eldri). Í 3.,2. og 1.þrepi (9-10 ára, 11-12 ára og 13 ára og eldri). Á Bikarmóti eru ekki aldursflokkaskiptingar. Tækninefnd er heimilt að breyta aldursflokkum sé þess þörf.
 
Skráning á mót
Eins og kunnugt er eiga félög að skrá nöfn dómara um leið og skráning keppanda fer fram eða eða fjórum vikum fyrir mót. Mikilvægt er að forföll séu tilkynnt til FSÍ sem allra fyrst þar sem þau hafa áhrif á hópakipan og tímasetningar móta. Félög eiga að senda inn einn dómara fyrir hverja fjóra keppendur. Á Bikarmóti skal senda minnst tvo dómara á lið. Ekki verður tekið við skráingum þar sem nöfn dómara vantar.
 
Að gefnu tilefni er ítrekað að mót FSÍ eru einungis ætluð þeim keppendum sem náð hafa góðu valdi á því þrepi sem verið er að keppa í. Það er ekki jákvæð reynsla fyrir iðkendur að ráða ekki við æfingar sínar. Ekki þarf að ná þrepi til að hækka sig upp um þrep. Einnig mega framúrskarandi iðkendur sleppa úr þrepum ef þjálfarar treysta þeim til svo að keppendur keppi á viðeigandi getustigi og komist fyrr en ella til keppni í frjálsum æfingum, sjá nánar reglur Íslenska fimleikastigans.
 
Við hvetjum þau félög sem hafa spurningar varðandi ofangreind atriði að hafa samband við meðlimi TKV eða skrifstofu FSÍ.
 
                                                                        Með von um gott fimleikaár

                                                                                                              Tækninefnd kvenna (TKV