Stjórn Fimleikasambands Íslands auglýsir eftir áhugasömum einstaklingi í verkefni á vegum FSÍ sem felur í sér yfirumsjón með öllum málum er varðar landslið Íslands í áhaldfimleikum, kvenna og karla.
Verkefnastjóri starfar í umboði stjórnar og í nánu samstarfi við tækninefndir FSÍ. Um nýtt verkefni er að ræða og mun viðkomandi koma að mótun verklags og hafa eftirlit með að verkferli sé í samræmi við lög og reglur. Markmiðið er að veita landsliðsfólki stuðning og aðstæður sem gera þeim mögulegt að komast í fremstu röð í heiminum.
Umsóknarfrestur er til og með 9.september 2010. Vinsamlega sendið umsóknir ásamt meðfylgjandi gögnum á netfangið
hrund@isisport.is .
Stjórn FSÍ