ÍSÍ gefur út nýja fræðslubæklinga

ÍSÍ hefur nú gefið út tvo nýja fræðslubæklinga.  Annars vegar er um að ræða bækling sem fjallar um félagslega hlið íþróttanna „Íþróttir - félagslega hliðin“, þar sem bent er á mikilvægi félagslegra þátta í íþróttastarfinu.  Hins vegar er um að ræða bækling sem heitir „Íþróttir - foreldrar og börn“ og er þar fjallað um hlutverk foreldra hvað íþróttaiðkun barna þeirra snertir.  Bæklingarnir eru gefnir út í netútgáfu til að byrja með, hugsanlega verða þeir einnig gefnir út á prenti síðar meir.  Ekki er um tæmandi upplýsingar um efnið að ræða, bæklingunum er ætlað að vekja lesendur til umhugsunar.  Nýju bæklingana og aðra fræðslubæklinga ÍSÍ má finna á heimasíðu ÍSÍ.