FSÍ voru að berast ánægjulegar fréttir frá Þýskalandi þar sem Hlín Bjarnadóttir, þjálfari í Gerplu, alþjóðlegur dómari og tækninefndarkona var að ljúka FIG þjálfaranámskeiði með stæl. Hún sat 10 daga námskeið 3.stigs FIG þjálfaragráðunnar (FIG Coaching Brevet). Þétt dagskrá meðal fremstu þjálfara Evrópu. Hlín gerði sér lítið fyrir og náði 92 stigum, varð önnur hæst á náskeiðinu. Hún er svo sem vön þessu en við vorum kannski að reikna með að hún tæki því rólegra núna, þar sem hún var með Bjarna litla með sér. Það var tekið sérstaklega fram við afhendingu gráðunnar, að Hlín og Gummi væru fyrstu hjónin sem FIG hefði útskrifað af 3.stigs námskeiðinu. Frábær árangur hjá Hlín.