15 manna hópur Fimleikasambandsins fór út til Dublinar 4.október til að taka þátt í norður Evrópumótinu í áhaldafimleikum. Keppendur karla voru: Rúnar, Róbert, Viktor, Ingvar og Ólafur. Þjálfari þeirra Heimir Jón og dómari Anton Heiðar. Kvenna keppendurnir voru Thelma Rut, Dóra Sigurbjörg, Harpa Dögg, Þórdís Helga og Sigrún Dís. Þeirra þjálfari var Berglind Péturs og Sandra Árna dómari. Fararstjóri var stjórnarmaður í FSÍ Valgeir Jónasson.
Keppning gekk að óskum og stóðu íslensku keppendurnir sig vel. Stelpurnar stóðu sig eins og vonir stóðu til, voru í 6. sæti í samanlögðu. Telma var í 6. sæti með 48,350 stig og komst í úrslit á jafnvægisslá, stökki og gólfi. Viktor og Róbert lentu í 9. og 10 sæti en strákaliðið í 5.sæti samanlagt og komust í úrslit á öllum áhöldum: Rúnar á bogahesti, hringjum og tvíslá, Viktor á gólfi, tvíslá og svifrá og Róbert á stökki.
Úrslitin fóru fram á sunnudeginum. Í úrslitum á einstökum áhöldum fengu við Íslendingar fern verlaun. Telma Rut fékk silfur á jafnvægisslá og brons á gólfi. Rúnar brons í hringjum og Viktor brons á gólfi.
Ferðin gekk í alla staði mjög vel. "Allir sem tóku þátt í ferðinni voru að mínu áliti okkur í alla staði til mikils sóma. Það er ekki mikið mál að ferðast með svona frábærum "krökkum" " sagði Valgeir fararstjóri eftir að heim var komið.